Mótmæli eru nú hafin á Austurvelli sem skipulögð voru í gegnum Facebook undir fyrirsögninni „Bylting! Uppreisn.“ Krafa mótmælendanna er að sögn Söru Elísu Þórðardóttur, eins skipuleggjandans, að ríkisstjórnin fari frá vegna fjölda mála sem vekja óánægju og reiði fólks.
Hægt er að fylgjast með mótmælunum í beinni á vefmyndavél frá Mílu sem staðsett er með útsýni yfir Austurvöll.
Mótmælin hófust kl. 17 en ræðumenn verða þau Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson. Tónlistarmennirnir KK, Valdimar og Jónína Björg Magnúsdóttir munu einnig koma fram á mótmælunum. Dagskráin stendur yfir til kl. 18.