Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa séra Guðbjörgu Arnardóttur í embætti sóknarprests og séra Ninnu Sif Svavarsdóttur í embætti prests í Selfossprestakalli Suðurprófastsdæmi.
Frestur til að sækja um embættin rann út 19. maí sl. Alls sóttu tíu umsækjendur um embættin tvö. Embættin veitast frá 1. ágúst nk.