Kjarasamningar milli ríkisins og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga voru undirritaðir í húsnæði ríkissáttasemjara rétt í þessu. Samninganefndir beggja aðila hafa setið við samningaborðið síðan klukkan níu í morgun.
Verkfall hjúkrunarfræðinga hófst 27. maí en lög voru sett á verkfallið 13. júní.