Leikjanámskeiðin í Hafnarfirði stóðu í dag fyrir hinni árlegu dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju. Keppnin var opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára og lögðu fjölmörg leið sína niður á bryggju í blíðviðrinu dag.
Börnin voru einbeitt en glaðbeitt á svip þegar ljósmyndari mbl.is leit við á bryggjunni.
Í rúm tuttugu ár hefur Hafnarfjarðarbær staðið fyrir þessari dorgveiðikeppni og í fyrra tóku rúmlega þrjú hundruð börn þátt og veiddu tæplega 200 fiska.
Keppendur fengu veiðarfæri á keppnisstað og þar var einnig hægt að fá beitu og leiðbeiningar frá starfsmönnum.