Reynisfjara 5. besta strönd Evrópu

Reynisfjara og Reynisdrangar sjást í fjarska.
Reynisfjara og Reynisdrangar sjást í fjarska. mbl.is/Brynjar Gauti

Reynisfjara við Vík í Mýrdal er á lista Lonely Planet yfir bestu strendur Evrópu í ár. Í frétt um málið á vef Túrista segir að sólarstrendur séu áberandi á listanum. 

Reynisfjara er í fimmta sæti topplista Lonely Planet og í umfjöllun segir m.a. að hin svarta Reynisfjara sé algjör andstaða við strendur Karabíska hafsins en engu að síður er mælt með að ferðamenn gefi sér góðan tíma í Vík.

Sjá listann í heild á vef Túrista. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert