Ríkissáttasemjari segir að ekkert tilefni hafi gefist til að boða til nýs fundar í kjaradeilu BHM og ríkisins. Bendir því allt til þess að gerðardómur muni úrskurða um kjör félagsmanna í BHM, en frestur til að ná samningi rennur út á miðvikudaginn, 1. júlí.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Þórunn Sveinbjarnadóttir, formaður BHM, sagði hverfandi líkur á því að samningar næðust. Ekkert hefði breyst í deilunni.
Ekki hefur verið boðaður nýr fundur í kjaradeilunni. BHM fundaði með samninganefnd ríkisins hjá ríkissáttasemjara á þriðjudag og reyndist sá fundur árangurslaus.
„Þetta er það sama og hefur verið á borðinu undanfarið og okkur hefur ekki borist neitt nýtt,“ sagði Páll Halldórsson, formaður samninganefndar BHM, eftir fundinn.