Ein og hálf vika er síðan gönguleiðin um Laugaveginn var opnuð á hálendinu, en enn er mikill snjór á svæðinu. Elíza Lífdís Óskarsdóttir, skálavörður í Landmannalaugum, segir um þrjátíu göngumenn hefja göngu þar á dag en færri séu á ferðinni en síðustu ár sökum lélegra skilyrða.
„Það er ennþá mjög mikill snjór á Laugaveginum. Í gegnum hraunið héðan og upp í Hrafntinnusker sem er byrjunin á leiðinni er þetta í lagi en þegar kemur um miðjan veg upp í sker og allt niður í Álftavatn er mikill snjór og blautt,“ segir hún.
Elíza segir snjó ekki hafa verið meiri á svæðinu í 10-15 ár. „Þetta er óeðlilegt miðað við síðustu ár, en fyrir 10-15 árum var þetta alltaf svona hérna,“ segir hún og bætir við að snjóað hafi á Fimmvörðuhálsi á laugardag.
Þá hafa veðurskilyrði ekki verið góð, en að sögn Elízu hafa skálaverðir varað göngufólk við því að fara af stað. „Við höfum verið að benda fólki á að það er mjög mikil þoka á svæðinu. Í gær var til dæmis tuttugu metra skyggni uppi í Hrafntinnuskeri. Svo er fullt af stikum á kafi í snjó og leiðin er ekki greinileg,“ segir hún. „Þetta er ekki fyrir fólk nema þá sem eru mjög vanir vetraraðstæðum og með gps-tæki.“
Elíza segir marga göngumenn þó vilja nýta frí sín í göngurnar, og einnig sé mikið um erlenda ferðamenn sem vilja ekki sleppa göngunni þrátt fyrir viðvaranir. „Við reynum að hafa vit fyrir fólki en það stoppa auðvitað ekki allir í skálanum hjá okkur svo við náum ekki öllum. Við erum samt búin að fá nokkra til að snúa við og fá þá frekar til að fara niður í Þórsmörk,“ segir hún.
Eftirlit er með gönguleiðum á svæðinu en ekki allar gönguleiðir hafa verið opnaðar vegna snjóþungans. Á þeim leiðum sem búið er að opna er þó mælst til þess að göngufólk haldi sig á merktum leiðum að sögn Elízu. „Ef fólk er að fara út fyrir stígana er hætta á gróðurskemmdum, þá getur fólk verið að ganga á mosa eða viðkvæmu landsvæði.“
Elíza segir að gönguleiðirnar séu ekki ruddar, en það hjálpi til þegar gengið sé á þeim. Þá fari skálaverðir einu sinni á dag og passi upp á að það sé vel stikað svo fólk fari réttar leiðir.
Hið árlega Laugavegshlaup fer fram þann 18. júlí nk. en þá hlaupa þátttakendur hina 55 km löngu leið á nokkrum klukkustundum. Aðspurð segir Elíza allt líta út fyrir að aðstæður verði erfiðari en síðustu ár. „Ég myndi halda að það yrði ennþá blautt í kringum Hrafntinnusker. Það verða mun meira krefjandi aðstæður í hlaupinu en síðustu ár, það er alveg klárt.“
Hún segist þó gera ráð fyrir því að stígurinn þoli hlaupið, en á fjórða hundrað manns hafa tekið þátt í því síðustu ár.