Grútleiðist að leika sætu stelpuna

Telma í hlutverki Agú.
Telma í hlutverki Agú. Ljósmynd/ Kvikmyndin Webcam

„Þetta var ein af þeim ótrúlegustu upplifunum sem ég hef átt. Ég trúði því ekki allt kvöldið að þetta væri að gerast,“ segir Telma Huld Jóhannesdóttir um frumsýningu kvikmyndarinnar Webcam í Smárabíói í gær. Telma leikur annað aðalhlutverka kvikmyndarinnar á móti Önnu Hafþórsdóttur. Anna leikur cam-stelpuna Rósalind en Telma leikur bestu vinkonu hennar Agú sem er tvíkynhneigð og upprennandi húðflúrslistamaður.

Viðtal mbl.is við Önnu Hafþórsdóttur: Tengir við fíknina

„Við mættum á forsýninguna kvöldið áður og héldum að það væri okkar leið til að díla við stressið en það virkaði ekki neitt,“ segir Telma og hlær. Stressið virðist þó hafa verið óþarft því myndin hlaut afar góðar viðtökur frumsýningargesta.

„Það sem mér fannst best var hvað allir höfðu sterkar skoðanir á sögunni og hvað hún sat í fólki. Það að við höfum náð að skapa fallegt samband þeirra [aðalpersónanna] á milli er yndislegt enda er það krúsjal hluti af þessari mynd.“

Ferskt kvenhlutverk í hafi karla

Þrátt fyrir eftirtektarverða frammistöðu í Webcam á Telma ekki langan leiklistarferil að baki. Hún segir alltaf hafa verið ljóst að hún færi út í einhverskonar listsköpun og er nýútskrifuð af leiklistarbraut í Fjölbraut í Garðabæ. Webcam er hinsvegar fyrsta stóra verkefnið hennar.

„Þegar við vorum að gera þetta þá var þetta ekkert svona stórt verkefni. Þá var þetta bara ég að vinna aftur með Tona, Magga og Aroni að því að búa til bíó. Okkar vinátta hefur einkennst af því að við höfum gaman að því að skapa,“ segir hún og vísar í leikstjóra, framleiðanda og tökumann myndarinnar.

Leikstjórinn, Sigurður Anton Friðþjófsson, er einnig handritshöfundur kvikmyndarinnar. Webcam byggist að miklu leiti á samtölum og þótti undirritaðri merkilegt að upplifa á frumsýningu myndarinnar að geta í fyrsta sinn á ævinni séð sjálfa sig og vinkonur sínar í orðræðu og fasi aðalhetja í íslenskri kvikmynd.

„Það er einstakt hvernig Toni skrifar. Það er ástæðan fyrir því að ég ákvað að vinna með þeim upprunalega fyrir tveimur árum í jóladagatali á YouTube,“ segir Telma.

„Ég er alveg meir yfir því að fá að leika þessa konu því hún er svo fersk. Ég veit ekki hversu oft ég hef fengið það grútleiðinlega hlutverk að vera „sæta stelpan“. Það er ógeðslega leiðinlegt því það er ekkert krefjandi og ekkert áhugavert en þarna var allt krefjandi, áhugavert og skemmtilegt.“

Tengdist persónunni strax

Sigurður Anton skrifaði Agú með Telmu í huga og kemur það því lítið á óvart þegar Telma jánkar, aðspurð hvort hún eigi margt sameiginlegt með persónunni sinni.

„Ég sá það strax að ég gæti blásið hana lífi. Ég er reyndar ekki með nein tattú og er alveg „straight“ en ég gat alveg tengt við hana á ýmsum öðrum levelum, kannski meira við hvað hún er jarðbundin og dygg vinkona.“

Þær Agú og Telma eiga það jafnframt sameiginlegt að hvorug þeirra er feimið fljóð og segist Telma ekki hafa átt í erfiðleikum með að leika í kynlífsatriðum í myndinni.

„Það er alltaf eitthvað örlíitið vandræðalegt í tvær-þrjár mínútur en ég hef alið úr mér mest alla spéhræðslu í gegnum leiklistina. Maður hefur þurft að skipta svo oft föt fyrir framan hvern sem er að það hættir að vera mál. Ég er mjög fylgjandi þeim byltingum sem hafa verið í gangi í samfélaginu s.s. #freethenipple og ég er á því að þessi mynd ýti undir þá umræðu.“

Fer í inntökuprófareisu

 „Mig langar að fara til Evrópu og fljúga yfir til Bandaríkjanna. Það eru rosalega margir leiklistarskólar sem ég hef áhuga á og ég get ekki ákveðið mig svo ég ætla að taka hálfgerða reisu í prufur í skóla. Svo sé ég hvert það leiðir,“ segir Telma um það sem framundan er.

Eftir sumarið kveður hún þó leiðina liggja í Hússtjórnarskólann þar sem hún hyggst verða sér úti um „praktískari“ kunnáttu.

„Þá get ég allavega eldað ofan í sjálfa mig ef ég verð fátæk við að reyna að lifa á listinni.“

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/WpOjLlW6o80" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
Telma hyggur á Evrópu- og Bandaríkjareisu til að finna draumaskólann.
Telma hyggur á Evrópu- og Bandaríkjareisu til að finna draumaskólann. Ljósmynd/ Telma Huld
Þau Magnús, Sigurður Anton, Telma, Anna og Aron unnu náið …
Þau Magnús, Sigurður Anton, Telma, Anna og Aron unnu náið saman við gerð myndarinnar. Ljósmynd/ Kvikmyndin Webcam
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert