Ferðamenn skilja fleira eftir sig á Íslandi en bara evrur og dollara. Undanfarið hefur verið hávær umræða um ferðamenn sem ganga örna sinna hvar sem rassinn hvílir. Þá hefur borið á því að túristar séu ófeimnir við að slá upp tjaldbúðum við opinberar byggingar, en taki lítið tillit til umhverfis síns.
Frétt mbl.is: Gista á skólalóðum og bílastæðum
„Það er búið að markaðssetja Ísland þannig að það þurfi ekki að borga fyrir neitt hérna, segir Ástdís Kristjánsdóttir, rekstrarstjóri Gullfoss Kaffi, við mbl.is. Ferðamaður kvartaði yfir því að klósettin við Gullfoss hefðu verið subbuleg og velti fyrir sér hvort þau væru þrifin sjaldan.
Frétt mbl.is: Ferðamenn „míga og skíta“ við Gullfoss
Í tilefni af þessu tók skiltagerðarfyrirtækið Ferró sig til og útbjó skilti til að mæta þessu áður ófyrirséða vandamáli.
Sjá nánar: Vaxtarverkir í ferðaþjónustu
Hrafn Heiðdal hjá Ferró skiltagerð sendi mbl.is þessa mynd, sem segir eiginlega meira en þúsund orð. Fjöldi fyrirspurna barst fyrirtækinu eftir að mynd af skiltinu var birt á Facebooksíðu Ferró.
Segið svo að túristinn skilji ekki eitthvað eftir sig!!
Posted by Ferró skiltagerð on Friday, July 10, 2015
Sögurnar sem berast þeim til eyrna frá aðilum í ferðaþjónustu sem hafa orðið fyrir barðinu á óprúttnum ferðamönnum eru oft ansi skrautlegar. Eins slík rataði á síður mbl.is, þar sem ferðamenn sáu sér ekki annan kost en að gera þarfir sínar undir berum himni, meðal annars á vígðri grund.
Frétt mbl.is: Gera þarfir sínar í kirkjugarðinum