Olís ætlar um verslunarmannahelgina að bjóða upp á bjór á bensínstöðvum sínum á leiðinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Þjóðhátíðarstemning verður á bensínstöðvum Olís í Norðlingaholti, Selfossi og Hellu, þar sem skemmtikraftar koma fram og Tuborg bjór verður til sölu.
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri smásölusviðs hjá Olís, segir um málið í Morgunblaðinu í dag að þetta sé gert í samstarfi við Þjóðhátíðarnefnd og Ölgerðina. „Þess var óskað af hálfu Ölgerðarinnar að myndum skoða hvort við gætum verið með Tuborg bjór á boðstólum á leiðinni til Vestmannaeyja, vitaskuld aðeins fyrir farþega en ekki ökumenn,“ segir Sigríður.
Leyfið gildir tímabilið 28. júlí – 4. ágúst frá kl. 11:30 til kl. 23:00.