Sviti rann af hverri manneskju

Snæbjörn Ragnarsson, bassaleikari Skálmaldar.
Snæbjörn Ragnarsson, bassaleikari Skálmaldar. mbl.is/Styrmir Kári

„Þið eruð að djöggla með líf barnanna okkar, helvítis fólkið ykkar!“

Þetta skrifar Snæbjörn Ragnarsson, bassaleikari Skálmaldar í kröftugri Facebook færslu um fæðingu dóttur sinnar og stöðu heilbrigðiskerfisins.

Dóttir Snæbjörns, Anna Snæbjörnsdóttir fæddist fyrir þremur mánuðum, þann 17. apríl og segir Snæbjörn fæðinguna hafa gengið allt annað en þrautalaust fyrir sig. Móðir Önnu fékk sýkingu í leg og fór svo að reynt var að taka stúlkuna með sogklukku. Öxl Önnu festist hinsvegar undir lífbeini móður sinnar og sat hún því föst.

Ég fékk seinna útlistun á því hvað gerist þegar svona tilfelli fara á versta veg,“ skrifar Snæbjörn. „Ég ætla ekki að tíunda þær grafísku lýsingar hér en staðreyndin er sú að ég hefði víst klárlega getað misst þær báðar. Þarna horfði ég framan í dóttur mína í fyrsta skipti, pikkfasta milli heima, andlitið lífvana og ekki eins á litinn og ég hefði viljað. Og þá fór af stað það ótrúlegasta sem ég hef orðið vitni að á lífsleiðinni.“

Snæbjörn segir hetjudáð Agnesar efni í annan pistil en að hann hyggist taka hana út fyrir sviga til að segja frá öðrum sem að fæðingunni komu.

„Í kringum okkur voru örugglega hátt í tíu manneskjur af öllum stærðum og gerðum, meirihlutinn konur. Þetta ljómandi fólk hafði fram að þessu brosað og létt lundina, hjálpað í hvívetna og hagað sér eins og við hin vonandi gerum dags daglega. Þegar þarna kom sögu og í harðbakkann sló breyttust hlutirnir hinsvegar algerlega. Þarna átti hver einasta manneskja hlutverk og sinnti því upp á líf og dauða. Án alls fums eða óðagots var gengið í verk sem virtist óleysanlegt. Kunnáttan, sannfæringin og samheldnin var slík að mér leið eins og ég væri staddur mitt í pittstoppi í Formúlu 1, nema hvað hér var líf í húfi, ekki peningar. Án þess að ég vilji dramatísera aðstæður of mikið var það svo að þarna skipti hver einasta sekúnda máli, sviti rann af hverri manneskju og eftir á var herbergið útlítandi eins og sláturhús. En enginn efaðist eitt augnablik.“

Anna kom í heiminn eftir um sex mínútur og lísir Snæbjörn henni sem skyrhvítri og lífvana. Segir hann dóttur sína ekki hafa andað og að hjartað hafi varla slegið.

Þarna var ég viss um að við værum búin að missa hana og korteri seinna, þar sem hún lá ennþá líf- og litlaus á borðinu við hliðina á okkur vorum við bæði handviss. Ég veit ekki hvað þessi tæki öll heita, eða hvað fór í raun fram, en ég veit fyrir víst að hún var bæði hnoðuð og blásin og allt hékk á bláþræði. Ég heyrði þetta ótrúlega fólk tala saman á blöndu af tungumáli sem ég kann mjög vel sem og öðru sem ég hef aldrei heyrt.“

Það tók viðstatt heilbrigðisstarfsfólk 15 mínútur en loksins fannst nægilegt lífsmark í Önnu til að hægt væri að ferja hana annað. Segir Snæbjörn að talað hafi verið við þau á mannamáli og þeim gert grein fyrir að allt gat farið á allavegu. Parið fékk dóttur sína í hendurnar sirka klukkustund síðar og var hún í framhaldinu sett í líkamskælingu í þrjá sólarhringa á vökudeild og eftir það í eftirlit í nokkra daga á sömu deild.

„Jafnt og þétt færðumst við úr óvissunni og góðar fréttir komu á færibandi. Tilfinningin var eins og að þurfa sífellt að draga spil úr spilastokki og draga alltaf ás, svo óskaplega heppin vorum við. Manni leið þó eins og einhver hefði fjarlægt alla hundana úr stokknum og sennilega gosana líka. Sex dögum eftir fæðinguna gengum við svo út af Landsspítalanum með alheilbrigt barn sem núna heitir Anna. Það er ótrúlegt.“

Ásar og mannspil plokkuð úr stokknum

Snæbjörn kveðst hafa melt pistilinn allt frá fæðingu dóttur sinnar. Hann hafi skoðanir á ýmsum samfélagsmálum en geti oftast séð hina hliðina. Málefni heilbrigðiskerfisins flokkist hinsvegar ekki þar undir.

„Það sem skilaði dóttur minni heilli heim var batterý sem er óskiljanlega gott. Þarna fer saman kunnátta, færni, mannauður, tækjakostur, manngæska og óteljandi margt fleira sem sennilega er hægt að meta að einhverju marki til fjár en umfram það eru auðlindir sem enga krónutölu er á festandi,“ skrifar Snæbjörng.

„Þið sem eruð á vaktinni, og allir sem hafa eitthvað með þessi mál að gera, vilijð þig gera svo vel að taka þetta til ykkar: Meðferð ykkar á heilbrigðiskerfinu er ekki spurning um pólitík. Þetta er spurning um almenna skynsemi, mannréttindi og rökhugsun. Að höggva svona úr meginstoð samfélags er foráttuheimska og sú heimska skrifast á ykkur sem ráðið. (...) Ef við setjum allt skrum og allar flækjur á ís og horfum á ískaldan kjarna málsins þá eruð þið að stuðla að því að hvert og eitt okkar eigi minni möguleika á heilbrigðu lífi. Þið plokkið mannspil og ása kerfisbundið úr stokknum, skilið inn tvistum og þristum til baka og áhrifin af því eru nú þegar orðin skelfileg. Þetta er svo ótrúlega vitlaust að ég er farinn að hamra fastar á lyklaborðið en góðu hófi gegnir. Er þetta ennþá óskiljanlegt? Einföldum þetta þá enn frekar:

Þið eruð að djöggla með líf barnanna okkar, helvítis fólkið ykkar! Annað hvort hættið þið því og kippið málum í liðinn, þó svo að þið þurfið að leggja allt annað til hliðar á meðan, eða þá að þið víkið fyrir fólki sem er ekki svona ótrúlega tregþenkjandi eins og þið virðist vera. Ég sætti mig aldrei við minna!

Þetta er dóttir mín, Anna Snæbjörnsdóttir. Hún er þriggja mánaða gömul í dag og vitanlega fallegasta barn í heimi.Anna...

Posted by Snæbjörn Ragnarsson on Friday, July 17, 2015
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert