Vandinn „hegðunarvandamál Ragnheiðar Elínar“

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson mbl.is/Kristinn

Össur Skarphéðinsson er harðorður í gagnrýni sinni á Ragnheiði Elínu Árnadóttur. Hann segir að eftir tvö og hálft ár í embætti hafi nær ekkert gerst í uppbyggingu á ferðamannastöðum.

„Þráinn Bertelsson segir að ráðherrar af kalíber Ragnheiðar Elínar séu sjaldgæfir. Það er rétt hjá honum. Þeir eru sem betur fer einsdæmi. Eftir tvö og hálft ár í embætti hefur nær ekkert gerst hjá Ragnheiði Elínu í uppbyggingu á ferðamannastöðum,“ skrifar Össur á Facebooksíðu sína.

„Á meðan fjölgar ferðamönnum stöðugt – ekki síst vegna velheppnaðra og margverðlaunaðra herferða síðustu ríkisstjórnar sem enn eru í gangi – eins og „Inspired by Iceland“ og „Ísland allt árið.“ Á mörgum fjölsóttum stöðum eru innviðir að springa. Sums staðar ríkir öngþveiti, þar sem aðþrengdir útlendingar ganga örna sinna á víðavangi eða álfreka í görðum heimamanna,“ skrifar Össur.

Og hann spyr: „Hvernig bregst ráðherra ferðamála við? Hún kemur með þá gáfulegu skýringu að þetta sé „hegðunarvandamál.“ Líklegast er hún eini Íslendingurinn sem þekkir ekki þá tilfinningu að vera í spreng eftir að hafa skakast tímunum saman í rútu. Staðreyndin er því miður sú að rót vandans liggur í henni sjálfri. Á tveimur og hálfu ári hefur Ragnheiður Elín engu komið í verk til að tryggja tekjustreymi til að byggja upp innviði á ferðamannastöðum.“

Össur segir hana þess í staða hafa átt í langvinnum útistöðum við ferðaþjónustu um leiðir til uppbyggingar innviða. Hún hafi, sem formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins lagst „harðast allra gegn skattabreytingum fyrri ríkisstjórnar, sem hefði aflað tekna til að leysa vandann.

„Eina „afrek“ hennar er hinn steindauði náttúrupassi sem allir, jafnt hennar flokkur sem ferðaþjónustan, skutu á bólakaf enda alvitlausasta hugmynd sem fram hefur komið í áratugi,“ skrifar Össur.

„Síðan hefur varla til ráðherrans spurst. Í dag kom þó í ljós að hún er enn í embætti þegar hún gaf hina gáfulegu yfirlýsingu um að það væri „hegðunarvandamál“ að útlendingum yrði mál eftir að hafa hossast um hálendið. - Að sönnu má fallast á að vandinn felist í hegðun. En liggur ekki í augum uppi að „hegðunarvandamál“ Ragnheiðar Elínar er verkleysi hennar sjálfrar?“ spyr Össur í lok færslu sinnar.

Ferðamenn, ferðamenn allsstaðar, en hvergi klósett að finna. Eða svo …
Ferðamenn, ferðamenn allsstaðar, en hvergi klósett að finna. Eða svo mætti allavega halda. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert