Viðkvæmar upplýsingar á glámbekk

Blaðamenn fletta í gegnum álagningarskrá.
Blaðamenn fletta í gegnum álagningarskrá. mbl.is/Golli

Samband ungra sjálfstæðismanna styður áform Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að leggja aftur fram frumvarp sitt um að takmarka aðgengi almennings að upplýsingum úr álagningar- og skattskrám og birtingu þeirra.

Í yfirlýsingu frá Ungum sjálfstæðismönnum segir að sambandið hafi lengi verið þeirrar skoðunar að birting skránna brjóti gegn stjórnarskrárvörðum rétti einstaklinga til friðhelgi einkalífs og sé með öllu óeðlileg.

„Fjárhagsmálefni fólks eru meðal viðkvæmustu persónuupplýsinga í nútímasamfélagi. Það þurfa því að liggja gildar ástæður til grundvallar þeirri stefnu stjórnvalda að heimta þessar upplýsingar í krafti valds og leggja þær svo á glámbekk. Órökstuddar hugmyndir um að borgararnir eigi að hafa virkt eftirlit með því hvort nágranninn greiðir of lága skatta geta vart talist grundvöllur slíkrar valdbeitingar,“ segir í yfirlýsingunni.

„Það þekkist varla í heiminum að hver sem er geti - í tvær vikur á hverju ári - skoðað skattgreiðslur annarra og reiknað þannig auðveldlega út laun þeirra. Þá verður sú framkvæmd ríkisskattstjóra að taka saman lista yfir þá skattgreiðendur sem greiða mestan skatt og senda þá á fjölmiðla að teljast ámælisverð. Engin heimild er fyrir slíkri framkvæmd í núgildandi lögum og verður hún ekki varin með vísan til langrar venju.“

Segir sambandið að birting upplýsinga um tekjur einstaklinga sé til þess fallin að grafa undan því trúnaðarsambandi sem hefur viðgengist á vinnumarkaði um launakjör í frjálsum samningum.

„Með því að skylda ríkisskattstjóra til að leggja þessar viðkvæmu upplýsingar á glámbekk gerir ríkisvaldið þennan trúnað að engu.

Ungir sjálfstæðismenn skora á þingmenn að styðja frumvarp Sigríðar á næsta þingi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert