Eigum ekki í prívat útistöðum við Rússa

Ásmundur Friðriksson.
Ásmundur Friðriksson. mbl.is/Árni Sæberg

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir í Facebookfærslu að Ísland eigi að láta af stuðningi við viðskiptaþvinganir á Rússland.

Ásmundir skrifar: „Tökum okkur af lista yfir þjóðir sem vilja viðskiptabann á Rússa.
Nú velta Rússar því fyrir sér að hætta að kaupa vörur af þeim 7 þjóðum sem þeir hafa enn keypt af vörur en eru engu að síður á lista yfir þær þjóðir sem styðja viðskiptabann Evrópusambandsins á Rússland sem sett var í júní á síðasta ári.“

Hann segir mikla hagsmuni í húfi, ekki síst fyrir sjávarútveginn að Rússar kaupi af Íslandi makríl og aðrar afurðir. „

Rússland er gríðarlega mikilvægur markaður fyrir íslenskar sjávarafurðir en þeir eru í 5. sæti yfir stærstu kaupendur sjávararafurða árið 2013.“

Hann segir Ísland eiga að taka sig af „óþurftalistanum“, enda eigi Íslendingar„í engum prívat útistöðum við þá ágætu þjóð.“

Tökum okkur af lista yfir þjóðir sem vilja viðskiptabann á Rússa.Nú velta Rússar því fyrir sér að hætta að kaupa vörur...

Posted by Ásmundur Friðriksson on Friday, July 31, 2015

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert