Dunkin' Donuts opnar dyr sínar fyrir viðskiptavinum á miðvikudaginn.
Nútíminn greinir frá því í dag að fyrirtækið muni gefa fyrstu 50 viðskiptavinum sínum stimpilkort. Með því geti fólk náð sér í einn kassa af kleinuhringjum vikulega í heilt ár.
Staðurinn opnar klukkan níu á miðvikudagsmorguninn. Gangi áætlanir eftir verður einn Dunkin' Donuts staður á fyrir hverja 20.000 Íslendinga, sem er tvöfalt fleiri staðir en í Bandaríkjunum miðað við höfðatölu.