Yfir tvö hundruð manns biðu við dyrnar á Dunkin' Donuts þegar opnað var fyrir gesti og gangandi klukkan níu.
Fyrsti Dunkin´ Donuts staðurinn á Íslandi var opnaður á Laugavegi 3 í morgun. Staðurinn er sá fyrsti í röðinni af alls sextán stöðum sem verða opnaðir á næstu fimm árum hér á landi.
Fyrstu 50 viðskiptavinirnir sem mættu í röðina fengu klippikort sem færir þeim kassa með 6 kleinuhringjum í hverri viku í heilt ár.
Veitingastaðir Dunkin´ Donuts eru í dag 11.300 talsins í 36 löndum víða um heim. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Canton, Massachusetts og er Dunkin' Donuts hluti af Dunkin' Brands Group, Inc.