Eldur kviknaði í farþegarútu á leið niður Víkurskarð klukkan rúmlega fimm í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri komust allir farþegar út úr rútunni ómeiddir. Slökkvilið Akureyrar var rétt í þessu að klára að slökkva eldinn sem var töluverður.
Að sögn sjónarvotts voru um þrjátíu erlendir ferðamenn um borð í rútunni. Eins og fyrr segir komust þeir allir út og bjargaðist farangur þeirra einnig. Þeir hafa nú allir fengið far til Akureyrar.