Raforkuskerðing áfram næstu daga

Frá Vestmannaeyjum. Skerðing verður á afhendingu rafmagns þar næstu daga.
Frá Vestmannaeyjum. Skerðing verður á afhendingu rafmagns þar næstu daga. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Næstu daga þarf áfram að skerða rafmagn til Vestmannaeyja vegna bilunar í spenni í tengivirki Landsnets í Rimakoti á Landeyjasandi. Í kvöld verður reynt að spennusetja Rimakotsspenninn að nýju á lágmarksálagi og vonast er að hann geti haldist í rekstri næstu daga meðan unnið er að koma varaspenni í rekstur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti.

Vegna bilunarinnar þarf áfram að skerða raforkuflutning til Vestmannaeyja og mun dreifiveitan í Eyjum, HS Veitur, stýra skerðingunni í samstarfi við sína viðskiptavini, eins og verið hefur frá því bilunin kom upp. Í kvöld verður reynt að spennusetja Rimakostsspenninn að nýju – í þeirri von að hann geti haldist í rekstri í nokkra daga á lágmarksálagi – en Landsnet vinnur nú á fullu að því að koma varaspenni austur að Rimakoti. Ekki er vitað nákvæmlega á þessari stundu hvað það tekur langan tíma, m.a. út af veðri en viðbúið er að varaspennirinn verði ekki kominn í rekstur fyrir austan fyrr en eftir nokkra daga.

Samhliða þessu eru HS Veitur að vinna að því að tryggja meira varaafl til Vestmannaeyjum en það hefur ekki reynst nægjanlegt í dag, m.a. vegna þess að allt umsamið varaafl sem á að vera til staðar í Eyjum reyndist ekki tiltækt þegar á reyndi.

Talið er að bilunin í spenninum í Rimakoti sé í skiptingu í tengibretti milli 132 kílóvolta (kV) og 66 kV spennu en það fæst þó ekki staðfest fyrr en hann hefur verið aftengdur og skoðaður. Svipuð bilun varð í umræddum spenni fyrir níu árum, árið 2006, og var hann þá sendur í fullnaðarviðgerð og hefur síðan þá verið í fullum rekstri.

Frétt mbl.is: Alvarleg bilun hjá Landsneti

Frétt mbl.is: Allt stopp vegna rafmagnsskorts

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert