Lögreglan á Vestfjörðum fékk tilkynningu rétt fyrir klukkan 12 á hádegi um tvo menn sem höfðu nauðlent lítilli flugvél á Súðavíkurhlíð.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum slösuðust mennirnir ekki og flugvélin er óskemmd. Að öðru leyti er málið í rannsókn.
Mikil mildi þykir að ekki fór verr.