„Getum tæplega bakkað út núna“

Brynjar Níelsson, alþingismaður.
Brynjar Níelsson, alþingismaður. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Mér skilst að ég sé með Pútinmeðvirkni og jafnvel orðinn Rússasleikja. Það er nú bara þannig með mig að ég er ekki hrifinn af viðskiptaþvingunum enda þær aldrei leitt til góðs, heldur þvert á móti. Gera lítið annað en að efla þjóðerniskennd þeirra sem fyrir verða og auka ógnina,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag. Vísar hann þar til viðbragða sumra við gagnrýni hans á þátttöku Íslands í viðskiptaþvingunum gegn Rússum.

„Ekki ætla ég að réttlæta aðgerðir Rússa og legg mikið upp úr samstöðu bandalagsþjóða okkar. Ekki ætla ég heldur að réttlæta allt sem bandalagsþjóðir okkar hafa gert. Nauðsynlegt er fyrir okkur, ef verulegir hagsmunir skipta okkur einhverju máli, að undirbúa vel ákvarðanir af þessu tagi. Dettur einhverjum í hug að við hefðum, án nokkurra annarra ráðstafana, tekið þátt í þessu vitandi hvernig Rússar brygðust við? Og dettur einhverjum í hug að stóru löndin í ESB hefðu farið í þessar aðgerðir ef viðlíka hagsmunir væru undir þar? Við verðum bara að viðurkenna sofandahátt okkar og getum tæplega bakkað út núna með því að afturkalla stuðninginn við þessar viðskiptaþvinganir,“ segir hann ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert