Fimm handteknir í Breiðholti

Fjórir lögreglubílar voru við húsið um tíma í dag.
Fjórir lögreglubílar voru við húsið um tíma í dag. mbl.is

Fimm menn voru handteknir í heimahúsi í Efra-Breiðholti síðdegis í dag. Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um miðjan dag. Málavextir eru óljósir og segist lögreglan ekki getað gefið frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Að minnsta kosti fjórir lögreglubílar voru fyrir utan húsið á tímabili.

Lögreglan var enn að störfum á vettvangi um kl. 19 í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert