Líti ekki á flóttamenn sem vandamál

Ólína Þorvarðardóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar.
Ólína Þorvarðardóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við Íslendingar þurfum að fara að takast á við málefni flóttamanna sem siðferðislegt úrlausnarefni en ekki sem aðsteðjandi vandamál fyrir okkur, eitthvað sem stemma þurfi stigu við okkar vegna,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins. Almenningsálitið hefði sett vaxandi þrýsting á stjórnvöld að bregðast við þeim bráða vanda sem við væri að eiga.

„Því miður hefur ríkisstjórn Íslands dregið lappirnar með hálfvolgum yfirlýsingum um að eitthvað verði gert en síðan hefur lítið gerst og nú eru farin að heyrast áköll frá fagaðilum eins og Rauða krossinum og hjálparstofnunum. Félagsmálaráðherra hefur ákallað almenning um stuðning við sig í málinu en veitir sjálf óljós svör þegar gengið er eftir því hvað skuli gert. Sett er saman ráðherranefnd og síðan tekur við þögnin. Eftir hverju er beðið, herra forseti? Neyðin er núna og þegar neyðin knýr dyra þarf að bregðast við,“ sagði hún.

Vakti Ólína því næst athygli á því að 22 þingmenn hefðu lagt fram þingsályktunartillögu um að tekið yrði á móti í það minnsta 500 flóttamönnum til Íslands. Sagðist hún vona að tillagan fengi góðar viðtökur í ljósi aðstæðna. „Við Íslendingar þekkjum af eigin raun mikilvægi mannúðar og samheldni þegar náttúruhamfarir dynja yfir. Þess vegna vona ég að við munum núna rétta meðbræðrum okkar og systrum hjálpandi hönd í neyð því að stríð er auðvitað hamfarir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert