Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir niðurstöðu héraðsdóms í máli einstaklings gegn ríkinu vegna lyfrarbólgulyfsins Harvoni staðfesta að lagaramminn sem byggt var á í umræddu máli haldi og starfshættir hins opinbera hafi verið lögmætir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá velferðarráðuneytinu. Aðalmálið nú sé þó að tryggja greiðari aðgang fólks að mikilvægum lyfjum eins og í umræddu máli.
„Kröfur stefnanda voru þríþættar, þ.e. að felld yrði úr gildi ákvörðun Lyfjagreiðslunefndar um að synja umsókn um einstaklingsbundna greiðsluþátttöku fyrir stefnanda í lyfinu Harvoni vegna lyfjameðferðar við lifrarbólgu C, að viðurkennt yrði að stefndu væri skylt að veita viðkomandi aðgang að lyfinu vegna nauðsynlegrar meðferðar við lifrarbólgu C og loks til vara að ólögmætt hefði verið að synja um einstaklingsbundna greiðsluþátttöku stefnanda í lyfinu með vísan til skorts á fjármagni. Ekki var fallist á neina af framangreindum kröfum í niðurstöðu Héraðsdóms,“ segir í tilkynningunni.
Ennfremur er haft eftir Kristjáni að niðurstaða dómsins staðfesti meðal annars þá meginreglu stjórnarskrárinnar að fjárstjórnarvaldið sé hjá Alþingi og að ekkert gjald megi reiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.