Vilja sjá tryggingargjaldið lækka

Rósa Guðbjarsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.
Rósa Guðbjarsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í dag var lögð fram áskorun til Alþingis um að tryggingargjald 2016 verði lækkað verulega umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.

Í tilkynningunni segir að í minnisblaði sem lagt var fram á fundi bæjarráðs í dag komi fram að tryggingargjaldið hafi verið 5,34% fyrir hrun en hafi verið hækkað í 7% árið 2009, þegar atvinnuleysi mældist 8%. Í dag sé gjaldið 7,49% og muni lækka í 7,35% á árinu 2016. Atvinnuleysi sé nú 3,1%.

Haft er eftir Rósu Guðbjartsdóttur, formanni bæjarráðs, að bærinn muni greiða um 670 milljónir króna í tryggingargjald árið 2015, en þessi fjárhæð væri um 478 milljónir króna ef tryggingargjaldið væri óbreytt frá því fyrir hrun.

„Eins og fram kemur í minnisblaðinu  varði ríkið  um 28 milljörðum króna til atvinnutryggingarsjóðs þegar hæst lét árið 2010 og þá nam atvinnuleysið 8,1%. Í fjárlögum 2016 er gert ráð fyrir að atvinnuleysisbætur hækki um 9,4% á milli ára og að ríkið verji um 13,3 milljörðum til atvinnuleysistryggingarsjóðs,“ er haft eftir Rósu í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert