Fimm útköll hjá björgunarskipum

Björgunarskip Landsbjargar eru kölluð út um 100 sinnum á ári, …
Björgunarskip Landsbjargar eru kölluð út um 100 sinnum á ári, oftast til björgunarstarfa. mynd/Landsbjörg

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kölluð út fimm sinnum í gær vegna aðstoðar við skip og báta á miðum landsins og sanna þar enn og aftur mikilvægi sitt að sögn verkefnastjóra slysavarna hjá Landsbjörg.

Innan félagsins eru rekin 13 björgunarskip sem staðsett eru hringinn í kringum landið. Hefur staðsetning þeirra verið ákveðin og miðuð við að sem styst sé á þekkt fiskimið og þar sem umferð skipa og báta er sem mest, að því er segir í tilkynningu.

 Öll skipin eru smíðuð og hönnuð til leitar og björgunar og eru vel til þess fallinn að takast á við erfiðar aðstæður sem oft verða við strandir landsins. Um borð í skipunum er dælu- og slökkvibúnaður auk þess sem þau geta tekið allstór skip í tog þurfi þess. Skipin geta náð um 15 – 17 sml (28-30 km/klst) hraða á klukkustund. Fjórir til sex björgunarmenn manna hvert skip og af þeim eru menntaðir skipstjóri og vélstjóri. Allir hafa þessir aðila fengið sérhæfða þjálfun í meðhöndlun skipsins, leit og björgun á sjó, slökkvistörfum, fyrstu hjálp og fleiru. Auk námskeiða sem félagið heldur er sótt menntun í Slysavarnaskóla sjómanna og erlendis. Eru til að mynda sjö áhafnarmeðlimir björgunarskipa á leið til Norðurlanda, Þýskalands og Frakklands í næstu viku,“ segir Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri slysavarna, í tilkynningu.

Þá segir, að björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar séu kölluð út um 100 sinnum á ári, oftast til björgunarstarfa þ.e. þegar sjófarendur eru í neyð eða skip eða bátar verða vélarvana. Þá sé skemmst að minnast frækilegrar björgunar á átta börnum og fjórum fullorðnum á skólaskútu utan Garðskaga í aftakaveðri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert