Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók konu í g-streng einum klæða og í annarlegu ástandi á Hverfisgötu um níu leytið í gærkvöldi.
Konan var óviðræðuhæf vegna vímu og því vistuð í fangageymslu í nótt og þar verður hún þangað til ástand hennar lagast.
Sjá nýja frétt um málið: Var ekki beitt ofbeldi
Síðdegis í gær var síðan ölvaður maður handtekinn í Lækjargötu við Bankastræti. Maðurinn hljóp fyrir bíla í umferðinni og skapaði með því hættu fyrir sig og aðra. Hann gistir fangageymslu og verður þar til ástand hans lagast.