Hvetja Ólöfu til framboðs á landsfundi

Ólöf Nordal innanríkisráðherra á Alþingi.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra á Alþingi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna og sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi, sem haldinn var í kvöld, var samþykkt ályktun um að hvetja Ólöfu Nordal til að bjóða sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins á næsta landsfundi sem fram fer í október.

„Fundurinn hvetur Ólöfu Nordal innanríkisráðherra til að gefa kost á sér til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi.  Ólöf hefur sýnt það í störfum sínum nú sem fyrr að hún býr yfir krafti, áræðni og reynslu til forystustarfa á vegum Sjálfstæðisflokksins,“ segir í ályktun fundarins.

Lands­fund­ur Sjálf­stæðis­flokks­ins fer fram dag­ana 23.-25. októ­ber næstkomandi.

Áður hefur komið fram að Hanna Birna Kristjáns­dótt­ir, þingmaður og vara­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, ætli að sækj­ast eft­ir áfram­hald­andi setu í stóli vara­for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert