Hjólreiðamaðurinn sem slasaðist alvarlega í árekstri þann 17. september er enn í öndunarvél.
Maðurinn er á fimmtugsaldri. Í færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir slysið segir að hjólreiðamaðurinn hafi verið að koma niður akbrautina við Vatnsendahvarf þegar bifreið var ekið í veg fyrir hann.