„Þetta er vitlaus nálgun“

Erfiðlega hefur gengið að sigla til Landeyjahafnar að vetri til.
Erfiðlega hefur gengið að sigla til Landeyjahafnar að vetri til. mbl.is/Árni Sæberg

„Mín skoðun er ein­fald­lega sú að þetta sé vit­laus nálg­un. Það þarf að taka Þor­láks­höfn meira inn í mynd­ina. Hönnuðir vinna eft­ir því sem fyr­ir þá er lagt. Skoða þarf mál­in mun bet­ur og láta reynsl­una tala. Ég vil ekki dæma Land­eyja­höfn úr leik en hún hef­ur bara sýnt að hún dug­ar ekki allt árið.“

Þetta seg­ir Sæv­ar M. Birg­is­son skipa­verk­fræðing­ur, sem var þar til ný­verið í starfs­hópi um hönn­un og smíði nýrr­ar Vest­manna­eyja­ferju.

Hann seg­ist lít­il áhrif hafa getað haft á þá stefnu sem hönn­un ferj­unn­ar tók. „Það var búið að negla þetta allt niður,“ seg­ir Sæv­ar, sem tel­ur að staldra þurfi all­ræki­lega við. Menn verði að viður­kenna að mis­tök hafi verið gerð við hönn­un Land­eyja­hafn­ar og ekki sé hægt að bjarga því með nýju skipi. Svipaðrar skoðunar er Ásmund­ur Friðriks­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um ferju­sam­göng­ur við Eyj­ar í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert