Lið Norðurþings sigraði í viðureign liðsins gegn liði Sandgerðis í spurningaþættinum Útsvari sem var í beinni útsendingu á RÚV í kvöld.
Urðu lokatölur 52-48, Norðurþingi í vil.
Sigurlið Norðurþings skipuðu þau Daníel Freyr Birkisson, Kolbrún Ada Gunnarsdóttir og Arnar Þór Stefánsson.
Í liði Sandgerðis voru Einar Valgeir Arason, Bylgja Baldursdóttir og Andri Þór Ólafsson.