Síðdegis í gær höfðu lögreglumenn afskipti af ökumanni sem ákvað að stytta sér leið með því að aka upp á gangstétt vegna smávægilegra umferðartafa.
Sá var ekki sáttur við afskipti lögreglu og spurði hvort lögregla hefði ekkert annað og betra að gera, en maðurinn á von á sekt vegna þessa ógætilega aksturs.