Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins undirrituðu samning við samninganefnd ríkisins í dag vegna starfsfólks aðildarfélaga SGS hjá ríkisstofnunum.
Fram kemur í tilkynningu á vef SGS, að samningurinn sé á svipuðum nótum og samið hafi verið um á hinum almenna markaði í vor og mun hann gilda frá 1. maí síðastliðnum.
„Hækkun frá 1. maí er 25.000 krónur. Þann fyrsta júní árið 2016 hækka laun um 5,5% að lágmarki 15.000 krónur auk breytinga á launatöflu. Ári síðar hækka laun um 4,5% og 1. júní 2018 hækka laun um 3%. Samningurinn gildir til 31. mars árið 2019 og kemur þá til sérstök eingreiðsla 1. febrúar 2019 uppá 45.000 krónur fyrir starfsfólk í fullu starfi og hlutfallslega fyrir starfsfólk í hlutastarfi,“ segir í tilkynningunni.
„Lágmarkslaun eru hækkuð til samræmis við það sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði og verða 300.000 krónur frá 1. júní 2018 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun. Framlag í þróunar- og símenntunarsjóði verður hækkað í 0,82% auk þess sem aukið framlag verður sett í stofnanasamninga samkvæmt sérstakri bókun,“ segir jafnframt.
Þá segir, að samningurinn verði á næstunni lagður fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins. Félög sem veitt hafi SGS umboð muni halda sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu. Þá hvetur SGS alla félagsmenn á kjörskrá til að nýta atkvæðisrétt sinn og greiða atkvæði með samningnum.
Helstu atriði samninginsins: