Ekki er svarað í aðalnúmer lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, 444 1000, þar sem þjónustufulltrúar í símaveri eru í verkfalli. Eins er þjónustudeild lögreglunnar lokuð vegna verkfalls SFR.
Áhrif þess eru m.a. að ekki er unnt að annast innheimtu sekta, auk þess sem lokað er í munavörslu og óskilamunadeild embættisins.
Ef óskað er skjótrar aðstoðar lögreglu skal hringja í 112. Takist samningar ekki, verður þjónustudeild LRH lokuð til miðvikudagsins 21. október.