Tvær líkamsárásir í Reykjavík

Önnur líkamsárásin sem tilkynnt var um átti sér stað í …
Önnur líkamsárásin sem tilkynnt var um átti sér stað í miðborg Reykjavíkur. Ómar Óskarsson

Tilkynningar um tvær líkamsárásir bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. 

Um miðnætti var tilkynnt líkamsárás í austurborginni.  Sá sem ráðist var á leitaði á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar. Einn maður var handtekinn og er hann í haldi lögreglu vegna málsins.

Rétt fyrir kl. 5 í nótt var svo tilkynnt líkamsárás í miðborginni. Þegar lögreglumenn komu á vettvang voru bæði gerandi og þolandi farnir af vettvangi, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert