Innanríkisráðuneytið úrskurðaði nýlega í máli Jóns Gnarr, þar sem hann krafðist þess að fá að taka upp nafnið Gnarr.
Frétt mbl.is: Þjóðskrá hafnaði Jóni Gnarr
Jón, sem var nefndur Jón Gunnar Kristinsson, fékk því síðan breytt í Jón Gnarr Kristinsson. Hann vildi hins vegar taka upp Gnarr sem eftirnafn og heita einfaldlega Jón Gnarr.
Jón, sem hefur verið búsettur í Houston í Bandaríkjunum, greindi frá því í mars sl. að dómstóll í borginni hefði samþykkt nafnabreytinguna og þar heitir hann nú Jón Gnarr. Þjóðskrá Íslands hefur hins vegar komist að annarri niðurstöðu.
Í myndbandi hér að neðan, sem Heiða Kristín Helgadóttir birti á Facebooksíðu sinni, má sjá Jón Gnarr lesa upp úrskurðarorðin.
Það er fátt sem hefur glatt mig meira en þessi úrskurður. 30 ára baráttu lokið. Til hamingju Jón Gnarr!!!!❤️
Posted by Heiða Kristín on Thursday, October 22, 2015