Á síðum Morgunblaðsins í dag má finna stuðningsyfirlýsingu við byggingu nýs Landspítala á Hringbraut.
Um 400 hundruð manns lýsa þar yfir stuðningi sínum við að Landspítalinn verði um kyrrt og uppbygging verði hafin við hann.
Meðal þeirra sem finna má á listanum er fjöldi starfsmanna LSH, fólk úr fræðasamfélaginu, fyrrverandi stjórnmálamenn o.fl., að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.