Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar gengu í gær frá samningi um makrílveiðar á næsta ári en samið var um að heildarafli yrði minnkaður um 15%. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vefsíðu skosku heimastjórnarinnar.
Haft er eftir Richard Lochhead, sjávarútvegsráðherra Skotlands, að vísindamenn hafi ráðlagt 37% minni heildarkvóta en að ákveðið hafi verið að rétt væri að horfa til lengri tíma og gera ráð fyrir 15% minni kvóta næstu árin.
Fulltrúar Íslands sátu viðræðufundinn sem fram fór á Írlandi en samkvæmt upplýsingum mbl.is snerust viðræðurnar að litlu leyti um mögulega aðild Íslendinga að samningnum. Ísland mun því að öllum líkindum áfram gefa út einhliða makrílkvóta.