Þróað verði íslenskt samningalíkan

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lýst er yfir áhyggjum af stöðu efnahags- og kjaramála í fréttatilkynningu frá formannafundi Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Þar segir að skortur á samstöðu, órói og átök hafi einkennt íslenskan vinnumarkað allt frá því að þeirri launastefnu sem samið hafi verið um á almennum vinnumarkaði í árslok 2013 var hafnað. Síðan þá hafi hver hópur á vinnumarkaði farið fram og reynt að rétta sinn hlut óháð því hvaða áhrif það hefði á aðra hópa eða hagkerfið. Niðurstaðan væri sú að útlit væri fyrir vaxandi verðbólgu og hækkandi vexti.

„Fundurinn telur mikilvægt að breyta um vinnubrögð við gerð kjarasamninga og horfa til þess hvernig við getum byggt upp kaupmátt til framtíðar með raunverulegum verðmætum. Þar getum við lært margt af félögum okkar á öðrum Norðurlöndum. Þar er mikið lagt upp úr ábyrgð, aga og vönduðum undirbúningi til að tryggja sem hagfelldasta útkomu fyrir launafólk. Nýtt samningalíkan byggi á Norrænu samfélagsgerðinni sem grundvallast á þeirri sýn að nota hagvöxt og aukna verðmætasköpun til þess að bæta lífskjör og tryggja jöfnuð. Meiri verðmæti eru sótt í aukinn útflutning en forsendan er sterk samkeppnisstaða, frjáls utanríkisviðskipti og aðgangur að mörkuðum. Samstaða og sameiginlegur skilningur er á því að skipta verður auknum verðmætum með sanngjörnum hætti með áherslu á bætt lífskjör, jöfnuð og traust velferðarkerfi,“ segir ennfremur.

Formannafundurinn telji mikilvægt að þróað verði íslenskt samningalíkan þar sem horft verði til þeirra vinnubragða sem tíðkast hafa á hinum Norðurlöndunum. „Fyrsta skrefið í þá átt er að tryggja sem best jafnræði milli hópa í launaþróun á komandi misserum, þar með talið að jafna lífeyrisréttindi milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins, tryggja meira jafnræði varðandi áhrif launaskriðs og jafna kynbundinn launamun á vinnumarkaði. Þá verða allir hópar að axla ábyrgð á breyttum vinnubrögðum. Þannig getum við í sameiningu náð hámarksárangri við að byggja upp kaupmátt og efla lífskjör til lengri tíma litið.“

Stuðningi er síðan lýst yfir við rammasamkomulag sem undirritað var af helstu viðsemjendum á almennum og opinberum vinnumarkaði í gær um breytt og bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Formannaundurinn telji það leggja grunn að bættum lífskjörum launafólks til framtíðar. Þá áréttar fundurinn „mikilvægi þess að stjórnvöld taki upp ábyrga hagstjórn og breytta peningastefnu sem hafi að markmiði að treysta stöðugleika. Það er á ábyrgð stjórnmálanna að tryggja félagslegan stöðugleika og víðtæka sátt um forgangsröðun í velferðarmálum, einkum heilbrigðis-, mennta- og húsnæðismálum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert