Ákvörðunarland er óþekkt

Rósa Braga

Stór hluti útflutnings Íslendinga fer til Hollands, nánar tiltekið Rotterdam, á leið til áfangastaðar sem gæti bent til þess að hlutdeild Hollands í vöruútflutningi sé of hátt skráð. Hagstofan gerði rannsókn á þessu en niðurstaðan er sú að ákvörðunarland er oft óþekkt.

Hagstofa Íslands birtir í dag niðurstöður rannsóknar sem gerð var á vöruútflutningi til Hollands. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hlutdeild Hollands í vöru­útflutningi þar sem hún hefur aukist mjög ört á undan­förn­um árum.

Mikið af vöruútflutningi fer um skipahöfnina í Rotterdam á leið til áfangastaðar sem gæti bent til þess að hlutdeild Hollands sé of hátt. Haft var samband við útflutningsaðila til að sannreyna gögn um útflutning til Hollands.

Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að ekki er unnt með auknum upplýsingum frá útflytjendum að finna endan­legt ákvörðunarland fyrir meirihluta þess útflutnings sem fer til Hollands þar sem mikilvægir útflutningsaðilar á iðnaðarvöru (aðallega áli og álafurðum) búa ekki yfir þeim upplýsingum. Því er ljóst að flutningur um Rotterdam hefur mikil áhrif á niðurstöðu um landaskiptingu útflutnings.

Í tilviki útflutnings á sjávarafurðum var hins vegar í flestum tilvikum hægt að fá upplýsingar um endanlegt ákvörðunarland. Hlutdeild Hollands í heildarútflutningi lækkar því aðeins um 6% eða um 39 milljarða króna.

Rannsóknin leiddi einnig í ljós að ekkert bendir til þess að útflutningur til Rússlands hafi verið vanmetinn.

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert