Frá og með 1. janúar 2016 verða ekki lengur seldir farmiðar hjá vagnstjórum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan er fyrst og fremst ört dvínandi eftirspurn í vögnunum og aukin áhersla á rafræn fargjöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.
Farmiðar verða áfram seldir hjá tæplega 30 söluaðilum Strætó víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu, gegnum heimasíðu Strætó og í Strætó appinu.