Búsettur í hjólhýsi í Garðabænum

Lögreglan fékk tilkynningu um mann sem hafði haft búsetu í …
Lögreglan fékk tilkynningu um mann sem hafði haft búsetu í hjólhýsi í Garðabænum í óleyfi eiganda. mbl.is/Eggert

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann sem hafði haft búsetu í hjólhýsi í einhverja daga í óleyfi eiganda. 

Lögreglan segir er að erfitt sé að segja hversu lengi maðurinn hafi haldið til í hjólhýsinu en að hann hafi verið búinn að koma sér þar fyrir. Hjólhýsið var staðsett í Garðabænum. Ekki er vitað hvort maðurinn hafi haft einhver tengsl við eigendur hjólhýsisins. Hann hefur nú yfirgefið þennan dvalarstað sinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert