Það er ekki á hverjum degi sem hús eru byggð eingöngu úr íslenskum viði, en sú verður raunin í þjónustuhúsi Skógræktar ríkisins í Laugarvatnsskógi.
Framkvæmdir eru nú hafnar á lóðinni og skógur hefur verið ruddur af byggingarstaðnum og jarðvinna verið boðin út.
Stefnt er að því að reisa burðarvirki hússins næsta vor og að þessi nýi áningarstaður verði tilbúinn um haustið. Hæstu trén sem felld hafa verið til að afla viðar í burðarvirkið voru 22 metra há, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.