Eldvatnsbrúin opnuð á ný

Brúin yfir Eldvatn. Talsvert rof varð undir eystri stoðir brúarinnar …
Brúin yfir Eldvatn. Talsvert rof varð undir eystri stoðir brúarinnar í síðasta Skaftárhlaupi í október. Photo: Sigurður Bogi Sævarsson

Brúin yfir Eldvatn hjá Ásum verður opin fyrir léttri umferð frá klukkan 7 - 19 daglega frá og með deginum í dag. Aðeins verður heimilt að keyra einn bíl yfir í einu og er hámarksþungi bíla 5 tonn. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að brúin séu opnuð í samráði við starfsmenn Vegagerðarinnar í Vík en unnið er að því að koma á sjálfvirkri vöktun.

Vegagerðin hefur frá því Skaftárhlaupi lauk staðið í ýmsum athugunum á ástandi núverandi brúar yfir Eldvatn hjá Ásum og rannsóknum á jarðfræði svæðisins. Mikið rof á austurbakka farvegarins hefur leitt til þess að brúin hefur skekkst í þeim atburðum sem áttu sér stað og hefur það áhrif á burðarþol hennar. 

Segir í tilkynningunni að Vegagerðin telji að við flóð muni eystri árbakkinn halda áfram að rofna og jafnvel án þess að til stórs Skaftárhlaups komi.Ekki þarf mikið rof til viðbótar til þess að brúin skemmist frekar. Til þess að fá nánari upplýsingar um farveg árinnar hefur verið undirbúin dýptarmæling í honum, en ekki hefur verið unnt að gera þær mælingar vegna þess hve rennsli árinnar hefur verið mikið.

Utan auglýsts opnunartíma er allur akstur bannaður yfir brúna. Þetta fyrirkomulag verður haft þar til sjálfvirk vöktun verður komin í gagnið. Unnið er að undirbúningi sjálfvirkrar vöktunar og stefnt er á að hún verði komin í gagnið eftir um það bil 2 vikur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert