Fréttablaðið stendur við forsíðufrétt gærdagsins og segir aðalritstjóri blaðsins að ekkert í frétt blaðsins gefi ástæðu til að bera efnisatriði þar til baka. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Kristínu Þorsteinsdóttur.
„Það sem yfirlögfræðingur á skrifstofu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur við hana að athuga er, að sagt sé að íbúðin hafi verið „sérútbúin“ eins og lögfræðingurinn orðar það. Hvergi er það orð að finna í frétt okkar, hvorki í gær né í fyrri fréttum um málið. Fréttablaðið hefur staðfestar heimildir fyrir því, að tól og tæki í íbúðinni hafi verið gerð upptæk. Það sem skiptir máli er, að kærur, sem staðfesta fréttirnar, eru komnar fram,“ segir í yfirlýsingunni sem birt er á vef Vísis.
Í fréttinni, sem bar fyrirsögnin „Íbúð í Hlíðunum útbúin til nauðgana“, var fjallað um meint kynferðisbrot sem kærð voru til lögreglu í síðasta mánuði. Þar var greint frá því að rannsókn lögreglu í málunm beinist að húsnæði í fjölbýlishúsi í Hlíðahverfi í Reykjavík, þar sem talið er að árásirnar hafi átt sér stað. „Samkvæmt heimildum blaðsins voru árásirnar hrottalegar og íbúðin búin tækjum til ofbeldisiðkunar,“ sagði meðal annars í fréttinni.
Þá sagði einnig að „samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins fann lögregla í íbúðinni ýmis tól og tæki sem mennirnir eiga að hafa notað við nauðganirnar, svo sem svipur, reipi og keðjur. Þá voru hankar í loftinu sem grunur leikur á að mennirnir hafi notað til að hengja upp aðra konuna á meðan ráðist var á hana,“ sagði í fréttinni.
Rætt var við Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, yfirlögfræðing á skrifstofu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, í Síðdegisútvarpi Rásar 2 í gær, sagði að orðum aukið að íbúð í Hlíðahverfinu í Reykjavík hafi verið „sérútbúin fyrir þessar athafnir.“
Í tilkynningu sem lögregla sendi frá sér í gær sagði að nauðsynlegt væri þó að taka fram að sumt í umfjöllun fjölmiða sé ekki í samræmi við fyrirliggjandi rannsóknargögn lögreglu.
Fram kom í viðtali við Vilhjálm H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmanns, sem er lögmaður annars mannsins sem hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot, í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun að hann hefur sent kröfubréf á Kristínu Þorsteinsdóttur fyrir hönd þeirra kærðu í málinu. Þar er gerð krafa um leiðréttingu fréttarinnar og afsökunarbeiðni auk þess sem mennirnir fara hvor um sig fram á 10 milljónir króna í miskabætur.