Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur sent Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, samúðarkveðjur frá ríkisstjórninni og íslensku þjóðinni vegna hryðjuverkaárásanna í París í gær. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
„Árásirnar eru skelfilegar og gróf atlaga að grundvallargildum okkar og okkur öllum þungt áfall. Ég votta þeim sem sárt eiga um að binda mína dýpstu samúð,“ er haft eftir Sigmundi.