Rannsóknarnefnd samgönguslysa, sem hefur rannsakað sjóslysið þegar fiskveiðiskipið Jón Hákon BA 60 sökk við Aðalvík 7. júlí síðastliðinn, hefur upplýst innanríkisráðuneytið um að hún telji nauðsynlegt að ná skipinu af hafsbotni til að ljúka rannsókn slyssins og hefur nefndin ákveðið að það verði reynt.
Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins.
„Ekki er fyllilega ljóst á þessari stundu hvað verkið muni kosta en það ræðst af ýmsum þáttum svo sem aðstæðum á slysstað. Ráðuneytið hefur komið því á framfæri við nefndina að það muni styðja við verkefnið sé þörf á því. Stefnt er að því að hefja aðgerðir á næstu vikum eða strax og aðstæður leyfa,“ segir á vef ráðuneytisins.