Allt bendir til að næsti heimsforseti Lions komi frá Íslandi, og verði að auki fyrsta konan til að gegna því embætti í 100 ára sögu hreyfingarinnar.
Guðrún Björt Yngvadóttir, Lionskl. Eik, er í framboði ásamt 13 öðrum en hefur fengið opinbera stuðningsyfirlýsingu, meðal annars frá alþjóðastjórn Lions og núverandi forsetateymi.
Kjörið fer fram í júní næstkomandi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.