Meðal niðurskurðaraðgerða lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er að setja aksturskvóta á bíla sína.
Ef miðað er við tvö aksturstæki, sem notuð eru á vakt hverju sinni, má gróflega gera ráð fyrir því að sú vegalengd sem hvert aksturstæki fer á vakt fari úr um 125 km í 115 km.
Að sögn Halldórs Halldórssonar, fjármálastjóra embættisins, er takmörkun á akstri liður í frekari niðurskurðaraðgerðum.