Í lok september 2015 nam kostnaður við hönnum á nýjum Herjólfi 147.083.890 kr. Þar af er kostnaður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunar 136.790.328 kr., að vatnslíkanprófunum og gerð útboðsgagna meðtöldum.
Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um kostnað við hönnun á nýjum Herjólfi.
Ásmundur spurði hversu hár kostnaður við hönnun á nýjum Herjólfi væri orðinn og hver væri kostnaður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunarinnar.
Hann spurði ennfremur, hver væri kostnaður við líkanprófanir í tanki erlendis.
Fram kemur í svari ráðherra, að kostnaður vegna vatnslíkanprófana erlendis hafi numið 139.200 evrum og hafi verið greitt fyrir þá vinnu 21.492.480 kr.
Einnig var spurt hver væri áætlaður viðbótarkostnaður vegna lengingar ferjunnar um 4,2 metra og tankprófana á stærri ferju?
„Mat ráðgjafa Vegagerðarinnar er að viðbótarkostnaðurinn sé óverulegur, þ.e. innan við 2-4%, þar sem fyrst og fremst er um aukið stálmagn að ræða. Tilboð norska fyrirtækisins Polarkonsult í viðbótartankprófanir nemur 64.900 evrum eða um 9,4 millj. kr.“ segir í svarinu.
Loks spurði Ásmundur, hversu hár hönnunarkostnaður nýrrar ferju hefði upphaflega verið áætlaður?
„Algengt er að smíði og hönnun sé boðin út saman. Miðað er við að hönnunarkostnaður ferju af þessari stærðargráðu geti numið allt að 15% af heildarkostnaði. Ákveðið var að skipta verkefninu upp og bjóða út fyrsta hluta hönnunar sérstaklega. Áætlaður hönnunarkostnaður var 800.000 evrur (um 116 millj. kr.), þar af voru áætlaðar 300.000 evrur (44 millj. kr.) í prófanir og hermanir. Undanskilið í hönnunarkostnaði var eftirlit með hönnun, ráðgjöf við vinnuhóp, þátttaka í hermun, frekari prófanir o.fl.“