Verkefnalýsing vegna undirbúnings deiliskipulags Þríhnúkagígs og nágrennis í Kópavogi er nú til kynningar á vef Kópavogsbæjar.
Framkvæmdir gætu í fyrsta lagi orðið árið 2017. Á annan tug þúsunda ferðamanna hafa farið niður í Þríhnúkagíg. Síðastliðið sumar var það fjórða sem boðið var upp á ferðir niður í gíginn.
Íslendingar eru í minnihluta þeirra en þeim hefur þó fjölgað hlutfallslega, sérstaklega á haustin og vorin, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.